Um hönnuðinn
Ég er sjálfstætt starfandi hönnuður. Ég lauk BA gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands vorið 2003 og AP gráðu í margmiðlun (Multimedia Design and Communication) frá Aarhus Business School vorið 2008. Stúdentsprófi lauk ég frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1998.
Ég hef mjög breiða starfsreynslu úr hönnunargeiranum. Hef unnið við vefhönnun frá árinu 1998, vann með háskólanámi hjá vefhugbúnaðarhúsinu Origo og eftir útskrift hjá auglýsingastofunni Mixa hönnun (nú Pipar), í þrjú ár. Þar fékk ég gott tækifæri til að vinna við alla þætti sem snúa að hönnun og auglýsingagerð. Vorið 2009 ákvað ég að hefja eigin rekstur í kringum þau fjölmörgu verkefni sem ég hef fengist við. Mestan áhuga hef ég á að vinna með frumkvöðlum og fá að taka þátt í að móta ferskar hugmyndir til framtíðar.
Ég er fædd árið 1978 og ólst upp í utanverðum Eyjafirði, bjó í átta ár í Reykjavík, í Danmörku í tvö ár og flutti svo með unnusta mínum og tveimur drengjum okkar, 5 ára og 1 árs, til Akureyrar sumarið 2008.
Þrátt fyrir að starfa sjálfstætt og vera með litla yfirbyggingu legg ég mikla áherslu að vera í góðu sambandi við annað fagfólk; ljósmyndara, textagerðarfólk, þýðendur og prófarkalesara. Eins leitast ég við að halda góðu sambandi við aðra hönnuði og bera verkefni undir þá. Ég hika ekki við að beina verkefnum annað ef mér finnst það þjóna þeim betur.
Ég er meðlimur í:
FÍT - Félag íslenskra teiknara
SVEF - Samtök vefiðnaðarins
Ég annarsstaðar:
Blogg - LinkedIn - Facebook - Flickr - Twitter - last fm - del.icio.us - i use this
